

Kópavogstún 6 - 8 er fjölbýlishús á fimm hæðum auk bílageymslu og bílskúra á jarðhæð. Í húsinu eru 22 íbúðir, 3ja-5 herbergja... meira 

KS verktakar er fyrirtæki í byggingariðnaði sem býr yfir viðamikilli reynslu af smíði smárra sem stórra bygginga. Hjá KS verktökum er lögð rík áhersla á áreiðanleika og vönduð vinnubrögð.
Á meðal helstu verka sem fyrirtækið hefur unnið eru bygging fyrir Háskóla Íslands, VR III hluti E, Stúdentagarðar við Eggertsgötu í Reykjavík, nokkur hús við Eggertsgötu og bygging húss við Suðurgötu með 77 íbúðum auk tveggja leikskóla, 124 íbúða hús við Eggertsgötu fyrir Félagsstofnun stúdenta. Fyrirtækið byggði einnig eitt af stærri timburhúsum á Íslandi, höfuðstöðvar Ingvars Helgasonar við Sævarhöfða. Þá er ógetið fjölda annarra bygginga.